Árás biskups á þúsund ára kristni á Íslandi ...

Biskupinn yfir Íslandi, Guðrún Karls stendur fyrir fordæmalausri aðför, beinni árás á þúsund ára kristinn sið á Íslandi sem tekinn var á Þingvöllum árið þúsund. Ný handbók presta og preláta boðar nýjan sið rótfastan í guðlausu vóki nútíðar. Ekki hefur íslensk þjóð upplifað annað eins í trúarlegum efnum. Vegið er að heilagri þrenningu. Drottinn er kvengerður, sagður móðir margbreytni. Kynin eru ekki lengur karl og kona, heldur svo mörg sem söfnuðir geta talið. Allah múslima er lofsunginn í dægurtexta; „Ó, lof til Allahs, al-hamil.“ Heimsmarkmið hinna guðlausu Sameinuðu þjóða eru grundvallarplagg undirritað af biskupi. Skrípamynd Agnesar forvera Guðrúnar Karls af trans Jesú er léttvæg við hliðina á þessum ósköpum.
 
TRÚFÉLAGIÐ GÖMLU GÖTURNAR
 
Með nýrri handbók yfirtekur vókið formlega íslenska kirkju. Trúfélagið Gömlu göturnar telur ráðslag biskups og vókpresta ganga gegn íslenskum kirkjurétti og Stjórnarskrá. Félagið hefur kært Þjóðkirkjuna til Úrskurðarnefndar þjóðkirkjumála. Formaður er Þröstur Jónsson í sveitarstjórn Múlaþings. Logi Kjartansson cand. jur. semur kæruna. Þar er skrifuð íslenska: „...[N]ú á dögum hefur mjög svo brakað í lagalegum og siðferðilegum undirstöðum samfélagsins ... vægast sagt vandræðaleg og jafnvel verulega hneykslanleg tilfelli hafa sprottið upp úr starfsvettvangi íslensku þjóðkirkjunnar.“ Þessi tilfelli teljast annarleg og jafnvel afbrigðileg, ólögleg, hugsanlega refsiverð. Vegsemd fylgir ábyrgð svo biskup hlýtur að hlusta, vilji hún forðast vera dregin fyrir dómstóla.
 
SIRKUS UNDIR TRANSFÁNA
 
Þetta gerist þó fyrirmæli Stjórnarskrár Íslands um Þjóðkirkjuna séu skýr sem verða megi. Þar segir í 62. grein: “Hin evangelíska lúterska kirkja skal vera þjóðkirkja á Íslandi, og skal ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda.“ Stjórnarskráin er sverð og skjöldur íslensks samfélags. Biskup Íslands skal vernda og styðja Þjóðkirkjuna en ekki breyta í sirkus undir transfána. Með handbókardrögum biskups til presta og preláta þykir skransað út í skurð svo rútan er utan vegar á hvolfi. Kirkjunni – sem Jesús Kristur lýsti sem kletti sínum – ber að fara að lögum. Lögmætisregla íslensks réttarfars er sem brotinn spegill svo og réttmætis- og rannsóknarreglur stjórnsýsluréttar. Hefðhelgaðar kenningar þjóðkirkjunnar eru að engu hafðar. Handbókardrög biskups eru guðlast, helgispjöll, villutrú og vanhelgun, segir í kæru. Vefmiðillinn Fréttin hefur bent á að í hinni nýju handbók muni biskup og prestar brjóta gegn vígsluheiti sínu: „Vér heitum því í heilagri vígslu að prédika orð Guðs hreint og ómengað, eins og það er að finna í hinum heilögu spámannlegu og postullegu ritum og í anda vorrar evangelísk-lúthersku kirkju.“
 
VONT AÐ VERA SÖKUÐ UM VILLUTRÚ
 
Nýtt framandi tungutak birtist í samræmi við kynjaflóru hins nýja siðar. Kynsegin persónufornöfn hán, hé og hín eru sem flaugar Satans í íslenska tungu. Ekki hefur fengist uppgefið um fjölda kynja 39, 79 eða 109. Geir Waage pastor emiratus varar við villutrú Þjóðkirkju. Geir kveður „...óvitaskap á ferð ... kynin [eru] líffræðilega tvö, karl og kona.“ Biskup segir vont að vera sökuð um villutrú. Í samtali við hina guðlausu lygaveitu ríkisins sagði biskup bitin samvisku: „Það má saka mig um ýmislegt en villutrú er ekki alveg rétt.“ Rúvízk nákvæmni að vanda; ekki alveg rétt. Handbókin hafði verið opinberuð á heimasíðu biskupsstofu en eftir að Fréttin birti umfjöllun um kæruna voru drögin niður tekin. Í þess stað ríkir þögn og þöggun. Táknrænt um vóksamfélag nútíðar

Stóra valdaránið & dramadrottningar á Alþingi ...

Hefur nokkurn tíma í sögu Alþingis verið reitt jafn hátt til höggs og í morgun þegar Kristrún Frostadóttir marseraði í pontu og hét að “…verja lýðveldið Ísland!” Hvað hafði gerst? Innrás Rússa yfirvofandi, jafnvel yfirstandandi? Atburður á pari við 10. maí 1940 þegar Bretar hernámu landið? Þegar brúnaþungur menntaráðherra upplýsti um “valdarán,” beindust sjónir frá Rússum. Hverjir voru að ræna völdum að mati Gumma skrúfu? Hvaða vá hafði knúið dyra íslenska lýðveldsins að mati Frostrósar, svo hún varð svona ofsareið?
 
TÓTA ÞINGSTÝRA FARIN AÐ SOFA?
 
Jú, þingfundi hafði verið frestað að kvöldi 9. júlí kl. 23:49 því næturfundir væru undantekning. Tóta þingstýra farin að sofa? Togga kúlulán marseraði í pontu hokin af hagsmunagæslu, hikstandi:“...Aldrei, Aldrei, Aldrei, Aldrei hef ég upplifað annað eins.“ Það stendur yfir orrusta um Ísland segir hún. Líklega hefur Togga rétt fyrir sér. Alveg eins og JóhaSig&SteinJoð þá ætla þær að afhenda Ísland allt og fiskimið svo sem Brussel krefst. Það verður að samþykkja veiðigjöldin fyrir esb þjóðaratkvæði og herförina til Rússlands.
 
"DRAGA UNDIR VEGG & SKJÓTA?" 
 
Kvennafansinn við stjórn Íslands setti á svið fordæmalausa sýningu. Drama Frostrósar er í veldisvexti við það sem áður hefur gerst í íslenskri þingsögu. "Þjóðin fær að vita um klæki stjórnarandstöðunnar," heitir Frostrós. Kjarnorkuákvæði 71. greinar þingskaparlaga verður beitt! Togga stillti sér upp við amerískan kjarnorkukafbát! Lygaveita ríkisins stendur vaktina. Inga Sælent dramatíseraði meir en nokkur, en spyrja má hvort hér fylgi hótun: Vill stjórnarandstaðan að á Íslandi ríki þannig ástand að nýir valdhafar þurfi að draga gamla valdhafa undir húsvegg og skjóta þá svo að valdaskipti séu tryggð.
 
 
Áleitin er spurningin nú þegar orrusta stendur um Ísland og Evrópa er í ljósum logum:
 
Er konum ómögulegt að útkljá ágreining?

Íslenskir "hermenn" sagðir á leið til Finnlands að berjast við Rússa ...

Ísland flytur út stríðið og við fáum fréttir tilkynntar að utan. Íslenskur her á leiðinni ... Hermálaráðherra Svíþjóðar Pål Jonsson hefur tilkynnt að herdeild undir forystu Svía verði staðsett aðeins 300 kílómetra frá landamærum Rússlands með sænskum, íslenskum, dönskum, norskum, frönskum og breskum hermönnum; Nato Forward Land Forces. Bandaríkjamenn munu hafa neitað þátttöku. Það er Gústaf Adolf Skúlason á Þjóðólfi sem færir okkur þessa frétt.
 
STRÍÐIÐ Á LEIÐINNI ...
 
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Íslendingum eru færðar fréttir að utan um hervæðingu Íslands. Á dögunum birti Donald Trump tölvupóst frá Mark Rutte þess efnis að allar Nato-þjóðir hefðu samþykkt 5% fjárframlög; “...got them to agree 5%.“ Okkur er sagt að framlag Íslands sé“...bara“ 1.5% eða sjötíu milljarðar á ári.
 
JÓLASVEINNINN Á HEIMA Í ROVANIEMI
 
Hersveitin verður í Rovaniemi 300km frá rússnesku landamærunum og Sodankylä í Lapplandi. Í Rovaniemi er áformuð stór Nato-herstöð. Jólasveinninn er sagður eiga þar heimilisfesti. “...Greinilegt er að íslensk yfirvöld hafa lofað einhverju fyrst nafn herlausa landsins er talið með,“ skrifar Gústaf sem hefur eftir finnskum sérfræðingi að fjarvera Bandaríkjanna séu “...örugglega mikil vonbrigði fyrir bæði Finnland og Svíþjóð.“ Á heimasíðu sænsku ríkisstjórnarinnar segir að Svíþjóð hafi aðstoðað Úkraínu fyrir á annað þúsund milljarða íslenskra króna. Stríðið er á leiðinni... 
 

FAZISTINN Í KAUPMANNAHÖFN...

Norðurlönd eru gengin af göflunum.  Við höfum ekki séð annað eins stríðsbrölt af dönskum ráðamönnum frá því Danir misstu Slésvík & Holstein 1864 og urðu “lille Denmark...“ Zelinísky var viðstaddur þegar Danmörk tók við formennsku í Evrópuráðinu í Árósum um daginn ásamt pfizerspilltri Der Leyen sem "...týndi sms textunum." Mette boðaði að Ungverjar missi atkvæðarétt innan ESB fyrir andstöðu gegn stríði Evrópu gegn Rússum. Úkraína er hvorki í ESB né Nato sem kunnugt er. Það stöðvaði ekki Friðrik X að hitta Zel litla Napóleon. Við höfum ekki séð jafn stríðsæstan norrænan leiðtoga og Mette orwellsku: “Stríð er betra en friður.“ Fazistinn  í Kaupmannahöfn fór á dögunum með Macron til Nuuk undir því yfirskini að “Grænland sé Evrópa.“ Ísland verður að hafna evrópsku stríðsbölti í Úkró/Rússó-stríðinu.


Transvirkin falla eitt af öðru ...

HáskólI Pennsylvaníu hefur svipt "transkarl" Liu Thomas sundtitlum og sigrum. Hann upplifir sig sem konu. HP biður allar konur afsökunar að hafa þvingað þær til þess að keppa gegn líffræðilegum körlum í íþróttum. Konur víða um Bandaríkin fagna ákvörðun HP og segja til marks um "... Almenna Skynsemi ... Common Sense."
 
Ákvörðunin markar þáttaskil í mannréttindum kvenna sem hafa att kappi við líffræðilega karla. Nýlega dæmdi Hæstiréttur Bretlands að transkarlar séu ekki líffræðilegar konur. Transkonur eru kvengervlar og transkarlar eru karlgervlar. Transmenneskju er eðlilega erfitt að horfast í augu við hina nöturlegu staðreynd en það verður að vinda ofan af brjálæðinu. Það hefur verið logið að börnum.
 
KEYRT ÁFRAM AF FÁMENNRI KLÍKU
Fámenn klíka í S78 keyrir bábiljuna í miðaldamyrkri transisma, peningaplott vélað í krystalsölum lyfjarisa og lækna með hnífa, pillur & sprautur kemízkra hormónalyfja. Klíkur í pólitískum flokkum & falsmiðlum með trumbur sjá ekki að Thomas er karl né að brotið hefur verið á konunni ...
 
Í nafni trans er börnum innrættur efi um sitt innsta eðli. Útkoman eru ólýsanlegar sálarkvalir saklausra barna & ungmenna. Frostrós, Togga herskáa & Inga Sælent hrópa: "...Bakslag í Mannréttindum Transfólks..." Staðreyndin er að Mannréttindi Barna eru brotin í leik- & grunnskólum án þess að umboðsmaður barna lyfti litla fingri. Skömmin mun lifa um aldir ... Þessi kona er að "de-transera" heitir Chloe Cole fór þrettán ára á kemízka hormóna og fimmtán ára í brjóstnám ... Hún getur verið mörgum fyrirmynd ... Það er leið til baka. 
 
Valgerður Snæland fyrrv. skólastjóri kveðst í pistli í tilefni þessa, geta nefnt  fjölda dæma en lætur tvö duga: Leikskólastjóri í Garðabæ sagdi módur 5 ára drengs að á leikskólanum væru bara þrjú transbõrn .. Þad væri bara einn drengur sem ætti eftir ad segja þeim hvort hann væri stúlka eða drengur .. Níu ára drengur ì Smáraskóla gat ekki sofið af áhyggjum yfir því að hann átti eftir að segja kennaranum sínum hvort hann væri stelpa eða strákur. 
 
Þetta er í mínum huga barnaníð ... 
 

Veröld á hverfanda hveli & ein stærsta lygi sögunnar ...

Vestanhafs vakti athygli á dögunum þegar Ted Cruz [1961-] öldungaþingmaður lýsti því að það væri heilög skylda Bandaríkjanna að verja hagsmuni Ísrael. Cruz vitnaði í 1. Mósebók 12.3 þegar Drottinn mælti við Abram:
 
“Ég mun blessa þá sem þig blessa, en bölva þeim sem þér formælir.“
 
Það má segja að þetta viðhorf Cruz sé nokkuð almennt á Vesturlöndum. Utanríkisstefna Breta og Bandaríkjanna byggir á einni stærstu lygi sögunnar er varðar Ísrael í Landinu helga þar sem Jesús Kristur þjónaði, sbr. brotið úr samtali Cruz og Tucker Carlson.
 
 
HEIMSMYND Á HVERFANDA HVELI & ÞRETTÁNDA ÆTTKVÍSLIN
Heimsmynd er á hverfanda hveli. Þeir sem stjórna Ísrael nútíðar eru Azkenazy gyðingar; “þrettánda ættkvíslin“ sem kom frá A-Evrópu alla leið frá Khazaríu milli Svartahafs og Kaspíahafs. Gyðingar ráða CIA og þar með Washington. Azkenazar tóku gyðingtitil eftir afkomendum Júda, fjórða sonar Jakobs Ísraels. Ljónið af Júda var forfaðir Davíðs konungs. Á dögum Jesú voru Júdar og Benjamítar í Júdeu. Lærisveinar Jesú voru Benjamítar nema svikarinn Júdas Ískaríot. Lærisveinar Jesú fóru meðal þjóðanna og breiddu út fögnuð hins Nýja Sáttmála við Drottinn. Páll postuli var Benjamíti. Benjamín var yngsti sonur Jakobs. Snorri Sturluson benti á tengsl Íslendinga við ættkvíslir Ísraela með frásögn af landvættunum í Heimskringlu. Skjaldarmerki lýðveldisins er sótt til sögu Snorra. Íslendingar eru Benjamítar, sbr. Hin Mikla Arfleifð Íslendinga eftir Adam Rutherford. Hann leiddi breska ríkisleiðangurinn í Pýramídann mikla í Giza milli stríða og kom hingað 1939 og hreif þjóðina.
 
TILKALL TIL GUÐS ÚTVÖLDU ÞJÓÐAR
Azkenazy gyðingar gera tilkall til að vera "Guðs útvalin þjóð". Þeir eru ekki af ætt Abrahams. Þar á meðal Rothchildar ríkustu menn veraldar sem sömdu við Breta um yfirlýsingu um Landið helga 1917. Íslendingar léku lykilhlutverk við stofnun Ísraels 1948 í kjölfar Helfarar nazista. Forfeður Bibi Netanyahu [1949-] forsætisráðherra Ísraels eru Azkenazar, afi hans var rabbí-zionisti. Bibi hefur leitt Ísrael í 17 ár, fyrst 1996. Clinton réðst á Belgrad orthódox Serbíu árið 1999. Bush réðst á Afganistan eftir 9/11 2001. Svo var ráðist á Líbanon, Írak, Lýbíu, Súdan, Sýrland, Sómalíu og Íran að frumkvæði Bibi. Proxy-stríð Nato gegn orthódox Rússum hefur staðið 2014-2025. Volomodyr Zelinsky [1978-] er gyðingur frá Kryyvi Rih suður af Kyiv, forseti 2019-2024. Afi hans Semyon þjónaði í Rauða hernum, barðist gegn nazistum Hitlers og leppnum Bandera, missti föður og þrjá bræður í Helförinni. Forfeður þýsku leiðtoganna Friedrich Merz, Úrsulu der Leyen og Olaf Sholz marseruðu undir hakakrossi. Nú fylkir Zel liði undir merkjum banderizta. Frostrós, Togga herskáa og Inga Sælent marsera með Mette og der Leyen í Austurveg & ætla senda íslensk ungmenni á vígvelli Rússó/Úkró ... Senn rís nýr dagur.
 

Kongó & Rúanda semja frið í Washington ...

Friður hefur verið saminn í Afríku milli Kongó og Rúanda eftir áratuga deilur. Afrísku lýðveldin Kongó og Rúanda undirrituðu friðarsamkomulag í Washington á föstudag fyrir milligöngu USA og fleiri ríkja. Leiðtogar ríkjanna, Olivier Nduhungirahe og Therese Kayikvamba Wagner undirrituðu sáttina. Rúanda hefur verið bakhjarl M23-skæruliða sem hafa lagt undir sig stór landsvæði í A-Kongó og stundað námagröft dýrmætra málma í smart-síma og hátæknivöru; kóbalt, tin, gull og fleiri dýrmæti. Evrópusambandið hefur verið gagnrýnt fyrir að líta undan að Rúanda hafi flutt mun meira magn málma úr landi en unnir eru í Rúanda. Á því hefur verið aðeins ein skýring. Málmarnir hafa verið unnir af skæruliðahópum í gegn um Rúanda til Evrópu.
 
ESB MISSIR SPÓN ÚR ASKI
Stuðningur Rúanda við M23 hefur verið gagnrýndur en samkvæmt samkomulaginu hættir Rúanda stuðningi við M23. Mótmæli hafa verið fyrir utan Berlaymont höfuðstöðvar ESB. Orðrómur er uppi um að nokkur hundruð belgískra hermanna frá gömlu nýlendunni hafi verið staðsettir í A-Kongó. Sagt er að “...friðarsáttin marki þáttaskil“ en talsmaður skæruliða kveður friðarsáttina engu skipta. Það sem þó virðist ljóst er að nýlenduveldi Evrópu eru að missa spón úr aski sínum líkt og Mið-Afríku þar sem Macron hefur fengið sparkið.

Vígvellir Úkraínu bíða íslenskra ungmenna ... Höfnum styrjöld þeirra

Frostrós og Togga hafa samþykkt 230 milljarða króna árleg herútgjöld til stríðsrekstrar Nato í Úkraínu og Rússlandi. Mark Rutte stríðsherra Nato skýrði Donald Trump frá þessu í gærkvöldi í tölvupósti sem Bandaríkjaforseti hefur opinberað. “…Það var ekki auðvelt en VIÐ höfum fengið ÞAU ÖLL til þess að samþykkja 5%,” montar Rutte sig. Þetta er annars vegar 3.5% til styrjaldareksturs og 1.5% hernaðarinnviða. Nú vitið þið hvað gerst hefur að baki luktum dyrum í Haag. Enginn spurður. Allir leiðtogar Nato hafa gefið vilyrði fyrir 5% herútgjöldum.
 
ÍSLAND EKKI Í ÞÁGU ÍSLENDINGA
Verg landsframleiðsla GDP er 4.600 milljarðar króna; fjögur þúsund og sex hundruð milljarðar. Fimm prósent eru 230 milljarðar; kr.230.000.000.000.- á ári. Í hælisleitendur renna +-kr.100.000.000.000.- falin útgjöld á ári. Hver samþykkti að Íslendingar séu 2rs flokks í eigin landi? Það eru +-kr.50.000.000.000 í græn afgjöld til Brussel. Miklu meira falið fyrir mér og þér. Pólitíkin rænir Ísland og flytur þjóðarauðinn úr landi líkt og Danir forðum. Aðild að ESB, bókun 35 fyrir bruzzelskar tilskipanir, "...aðlögun að hernaðararmi ESB." Fiskimiðin til Brussel, sæstrengir flytja orkuna yfir hafið. Ísland EKKI fyrir Íslendinga.
 
VÍGVELLIR BÍÐA UNGMENNA OKKAR …
Nato er á leið í allsherjarstríð við Rússland eftir fimm ár; árið 2030. Myrkur Stríðs & Dauða Váfuglsins vomir yfir Evrópu. Áttar fólk sig á skelfingunni? Útþensla Nato rímar við lífsrými; lebensraum Hitlers fyrir níutíu árum. Hvað er gert ráð fyrir að mörg +/-20 ára íslensk ungmenni falli á vígvöllum fjarri ströndum? Fimm hundruð ungmenni í kistum til baka frá Kyiv? Líkt og Ísland mun Ameríka senda hermenn; Boots on the Ground. Þau bíða eftir að Trump láti af embætti 2029 ... Ef "vel gengur" jafnvel fyrr!
 
FAZÍSKT LÖGREGLURÍKI
Rutte segir að aðild Úkraínu í Nato sé óhjákvæmileg. Zelinsky er í Haag. Kôk-Zel hefur komið á fazísku lögregluríki eltandi uppi ungmenni í strið. Embættistíð Kôk-Zel rann út í maí 2024. Svona er lýðræði þeirra. Der Leyen hefur enginn kosið ALDREI. 2021-2025 var Leyen leidd af senílu gamalmenni. Leyen bíður þess að Trump hverfi af sviðinu. Frostrós & Trump hittust í Haag. Togga hikstar á hótelherbergjum; vígvæðumst, vígvæðumst rymur hún óðamála á lygaveitum ríkisns sminkuð eins og unglingstelpa. Endurtók hún svívirðingarnar í garð gula karlsins?
 
Landráð, klár brot á Stjórnarskrá Íslands. Aldrei í sögu Íslands hafa landsmenn lifað aðra eins vátíð ...

Sjöunda ríkið er Íran ...

Íran er 7da ríkið. Nú er tæpur aldarfjórðungur síðan "Endalausar styrjaldir" hófust með 9/11 og Afganistan 2001. Það eru 22 ár síðan Wesley Clark hershöfðingi sá áformin um árásir á ríkin sjö. Það var í Pentagon í tíð Bush/Rumsfeld.
 
Árið var 2003. Fólk man gereyðingavopnin í Írak; "Weapons of Mass Destruction" sem aldrei fundust. Hin ríkin á listanum voru Líbanon, Lýbía, Súdan, Sýrland, Sómalía & nú Íran. Allt úr smiðju Nethanyau sem hafði verið sendiherra í Washington. Obama/Biden mögnuðu stríðin 2008-2016. Obama voru veitt friðarverðlaun Nóbels. Fólk man hatrið í garð Saddam Hussein í Írak, hatrið í garð Gaddafi í Lýbíu og Assad í Sýrlandi.
 
Öll þessi ríki voru sprengd á "steinöld". Milljónir eru fallnar. Við fengum milljónir á milljónir flóttamanna. Árið 1999 voru loftárásirnar á orthódox Serbíu í tíð Clinton. Belgrad var sprengd í 78 loftárásum. Árið 2000 lagði Pútin til Nato-aðild Rússlands. Hermaskínan og Clinton höfðu önnur áform. 
 
ÚKRAÍNA 2014-2025
Svo kom orthódox Úkraína, yfirlýsingin í Búkarest 2008 um Georgíu og Úkraínu í Nato. Valdaránið í Kyiv 2014 og stríðið í A-Úkraínu á hendur rússneskum íbúum landsins 2014-2022. Þá stríðið 2022-25 þegar Rússar fóru inn í Úkraínu. Eini munurinn er að í stað þess að sprengja varnarlausar þjóðir, er Nato að tapa proxy-stríðinu gegn Rússlandi. Evrópa reigir sig eins og hani. Nú er Pútin hataður.
 
KENNEDY & VÍETNAM
Í janúar 1961 varaði Dwight Eisenhower forseti landa sína við hermaskínunni; Military Industrial Complex. John F. Kennedy forseti var skotinn til bana á götu í Dallas, Texas 23. nóvember 1963. Það var valdarán í beinni útsendingu frammi fyrir bandarísku þjóðinni. Lyndon Johnson varð forseti og lýsti yfir stríði á hendur N-Víetnam fyrir að ráðast á amerískan tundurspilli á Tonkin-flóa. Það var í ágúst 1964. Það tók 40 ár að afhjúpa þá lygi.
 
TILRÆÐIÐ Í BUTLER & CNN
Nú er Trump forseti. Trump var sýnt banatilræði í Butler Pennsylvaníu 13. júlí 2024. Það var í beinni útsendingu en guli karlinn vék sér undan kúlunni!!! 
 
Nú er stríð í Íran. Ekkert breytist nema Ísrael gerir árásirnar. Það er stríð í Gasa. Trump heimsótti ekki Ísrael á ferð sinni um Persaflóa á dögunum. Okkur er sagt að Ísrael sé að koma í veg fyrir "kjarnorkuáætlun" ÍranaVar kjarnorkusprengja í þessu fjölbýlishúsi?
 
Er USA sjálfstætt ríki? ...

Lögleiðir Ísland misrétti sem Hæstiréttur USA hefur dæmt ólöglegt ...

Dagana sem íslensk transsendinefnd kynsegin fólks var í Washington DC dæmdi Hæstiréttur Bandarikjanna 9-0 að “...öfug mismunun gangi gegn Stjórnarskrá USA. Rétturinn dæmdi gagnkynhneigðri konu í vil í máli Ames vs. Ohio Department of Youth Services. Ólöglegt var að mismuna henni sem “... hvítri og gagnkynhneigðri konu ... á kostnað minnihlutahópa í þessu tilviki LGBTQ-fólki. Mannréttindi eru veitt einstaklingum ekki hópum. Borgaralögin frá 1964; Civil Rights Act of 1964 um jákvæða mismunun brjóta gegn Stjórnarskrá Bandaríkjanna. Framvegis verður ólöglegt að mismuna fólki á grundvelli “...kynþáttar, litarhafts, trúar, kyns eða þjóðernis.“ Hóphyggja hefur orðið fyrir þungu höggi. Dómur Hæstaréttar Bandaríkjanna kemur í kjölfar dóms Hæstaréttur Bretlands sem dæmdi að “...transkonur eru ekki líffræðilegar konur. Þar féll helsta vígi transvókisma þó þessum sannindum hafi ekki skolað til Íslands né ef út í það er farið til Brussel.
 
BABELSTURNAR & HÓPHYGGJAHæ
Ráðstýran Hanna Katrín Friðriksson heldur því fram að svokallað bakslag transisma sé vegna skorts á íslenskri lagasetningu þar sem Ameríka sé ekki lengur "öruggt ríki" því Trump viðurkenni ekki nema tvö kyn. “....Hanna Katrín ætlar sér að setja lög um skoðanir fólks,“ skrifar Páll Vilhjálmsson bloggari. Glóbaliztar neita að trúa að kynin séu bara tvö. Þeir minna mig á sögu Mósebókar 11:1-11 þegar var eitt tungumál í Babýloníu. Mennirnir hófu að reisa Babelsturn til himna. Drottinn kom niður til jarðar, tvístraði, dreifði mönnum um jörðina og ruglaði þjóðtungum. Nú hafa glóbaliztar reist Babelsturn í Strassbourg, stefna á eitt tungumál og jafnmörg kyn sem menn geta talið.
 
MISMUNUN HVÍTRA & GAGNKYNHEIGÐRA ÓLÖGLEG Í USA
Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmdi einróma að “...öfug mismunun“ gangi gegn Stjórnarskrá USA. Rétturinn dæmdi Merlean Ames í vil um að gengið hafi verið gegn Stjórnarskrárrétti hennar. Henni var neitað um stöðuhækkun og lækkuð í starfi á kostnað LGBTQ-fólki. Þessi dómur hefur vakið mikla athygli vestanhafs. Ames hafði tapað máli sínu fyrir héraðsdómstól ásamt áfrýjun til Sjötta Umdæmisdómstóls; Sixth Circuit Court.
 
GAGNKYNHEIGÐ KONA & TVÆR LESÍBÍUR
Dómstólar höfðu áður dæmt löglegt að mismuna fólki tilheyrandi meirihluta; hvítum og gagnkynheigðum körlum og konum. Það þurfti að ekki sanna mismunun "einstaklinga" aðeins "hópa". Árið 2019 hafði Ames sótt um stöðu deildarstjóra en var hafnað ásamt tveimur lesbíum sem var synjað um starf. Átta mánuðum síðar var önnur lesbían ráðin. Ames var gefinn kostur á stöðulækkun eða segja upp. Hún kaus stöðulækkun og fór síðan í mál gegn fylkinu sem hún hefur unnið.
 
BORGARALÖGIN FRÁ 1964, TRANS-VÓK & HÆLISLEITENDUR
Borgaralögin frá 1964 voru samþykkt í kjölfar misréttis í garð svartra og morðsins á John F. Kennedy 1963. Lögin gerðu það að verkum að “...minnihlutahópar“  urðu rétthærri í bandarísku þjóðfélagi.Í framhaldi varð LBGTQ-fólk rétthærra gagnkynhneigðu fólki. Síðar urðu ólöglegir sem löglegir hælisleitendur rétthæri íbúum Bandaríkjanna, Evrópu og Íslands. Nú er svo komið að Íslendingar, líkt og Evrópubúar horfa fram á gereyðingu þjóða. Fullyrða má að “...hvítum og gagnkynhneigðum“ Íslendingum sé mismunuð, neitað um störf á kostnað gæða og hnignun tekið yfir land & þjóð.

Gad Saad í Hörpu, sníkjulíf & slíta í sundur friðinn ...

Það var húsfyllir í Hörpu á fyrirlestur hins líbansk-kanadíska Gad Saad sem benti á þá furðuþversögn að hámenntað fólk sé aftengt raunveruleika. Gad Sad talar tæpitungulaust um að  sníkjulífi og sjálfstortýming séu að eyðileggja vestræna siðmenningu.“Parasitic Ideas and Suicidal-Empathy are killing the West.“ Hið gríska orð Oikophobia; hatur í garð heimahaga var fyrst lýst fyrir meir en þrjátíu árum. Þjóðhatur birtist í níðingslegri aðför að séra Friðriki. Ég hef til margra ára bent á aðförina að vestrænni siðmenningu. Paník glóbalizta við fundi ættjarðavina á Austurvelli staðfestir ótta þeirra við ættjarðaást, ást þjóðar til Íslands, sterkasta kærleik veraldar af sama meiði og ást karls & konu, ástar til barna og niðja. Kærleikur er gjöf Drottins, skapara himins og jarðar.  

 

ÞAU SLÍTA Í SUNDUR FRIÐINN

Guðlausir glóbaliztar og feminiztar hafa framselt landið í útlendar hendur, útsendarar myrkurs og dauða; bæla ættjarðarást, rægja ættjarðavini, gjaldfella íslenska fánann, skjaldarmerkið, þjóðsönginn, sögulega arfleifð íslenskrar þjóðar, grafa undan íslenskri tungu. Þau slíta i sundur lögin og þar með friðinn. Þau hafa snúist gegn eigin þjóð haldin þjóðhatri; oikophobíu. Þau flytja inn fólk sem lifir sníkjulífi á kostnað íslensks alþýðufólks. Þau opna landamæri, selja börn og ungmenni í hendur glæpamanna seljandi fíkniefni. Þau eyðileggja fjölskyldur, lbgtq-væða, skrípavæða Jesú, senda skrípafólk í leik- og grunnskóla til að innræta og vókvæða. Þau stefna börnum og ungmennum undir lögaldri til lækna með hnífa, pillur og sprautur; sölumenn kemízkra lyfja í þjónustu lyfjarisa sem mögnuðu covidpest til að kúga og knésetja þjóðir.  Menntakerfi og heilbrigðismál eru í lamasessi, vegakerfið sem í þriðja heims landi.

 

Þau eru arfberar alþjóðahyggju sósísalista og kommúnista, heyja proxy-stríð fjarri ströndum í Austurvegi, selja fullveldi þjóðar til Brussel. Fyrrum rændu Danir Ísland svo við lá útrýming þjóðar. Nú rænir pólitíkin Ísland, sendir milljarðana úr landi og stefnir á útrýmingu íslenskrar þjóðar. Þau eru öfgafólk.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband