Öryggisráðgjafar í New York Times: Stríðið í Úkraínu er 'óvægin hrakför' ...

Í liðinni viku birti New York Times opið bréf 14 öryggissérfræðinga þess efnis að pólitísk lausn verði fundin á Úkraínu-stríðinu. Þeir kalla stríðið óvægna hrakför; War in Ukraine is Unmigitated Disaster. Sífellt fleiri eru að átta sig á stöðunni á vígvöllum Úkraínu, nema að því er virðist íslenskir ráðamenn. Friðrik Jónsson öryggis- og varnarmála sérfræðingur var á Stöð 2 um helgina. „...Úkraínumenn [hafi] tekið þá ákvörðun að neita Rússum um að ná borginni og nærliggjandi svæðum. Það hefur gengið ágætlega,“ sagði sérfræðingurinn. Jafnframt að siðferði- og hernaðarlegur stuðningur Vesturveldanna sé mikilvægur. Þetta þótti mér hraustlega mælt. Hann líkt og vinir mínir Óli Björn Kárason og Albert Jónsson virðist blindur á gang stríðsins og siðferðilegt niðurbrot Vesturlanda. Svo er líka um þær ráðstýrur Kötu og Dísu. Öll eru blind á upphaf Úkraínustríðsins 2014 þegar herför Kænugarðs gegn eigin þegnum hófst í Donbass; blind á  trúarofsóknir gegn orthodox fólki og kirkjum þeirra; blind á Azov-nazista í úkranska hernum; blind á spillingu 55 milljarða olíupeninga í vasa Zelinskiy og félaga; blind á hryðjuverk Biden á Nord Stream; blind á breska úran geislaskýið yfir A-Evrópu; Úkraínu, Póllandi, Moldóvíu og Rúmeníu í boði Rikka ríka í Downingstræti 10.

Þau virðast blind á blóðugt valdarán í Kænugarði í boði CIA, Obama og Biden þegar um 100 manns féllu fyrir leyniskyttum á Evróputorgi og 48 manns voru brenndir í Alþýðuhúsinu í Odessa. Sitjandi forseti Úkraínu flúði til Rússlands. Wikipedia kallar valdaránið byltingu virðingar; Revolution of Dignity. Hver skrifar þessa sögu? Pedro Poroshenko nýr forseti lýsti því yfir að “…börn þeirra [Rússa] muni hírast í kjöllurum.” Þetta er vitnisburður um svakalegt hatur, kannski vegna 70 ára kúgunar Stalíns, Krjútsoffs og Brezhnevs en er friðarbragur á vestrænum skriðdrekum og F-16-þotum í Donbass? Ísland og Norðurlönd eru að hervæðast. Hvað finnst fólki?

AF HVERJU FÓR BORIS TIL KÆNUGARÐS

Rússar gerðu innrás í Úkraínu 24. febrúar 2022. Pútin kallar það sérstaka hernaðaraðgerð. Rússar líta á Úkraínustríðið sem enn eina herför Vesturlanda gegn Rússlandi. Er eitthvað til í því? Vorið 2022 voru friðarviðræður í Ankara, Tyrklandi fyrir tilstilli Erdogan forseta. Samningar virtust innan seilingar þegar Boris Johnson mætti í Kænugarð í apríl’22, barði í borðið og kvað frið ekki koma til greina. Boris átti undir högg að sækja á heimaslóð vegna veislugleði í Downingstræti 10 á covid-tímum; Party-gate. Taldi Boris sig þurfa snotra styrjöld, eins og Falklanseyjastríðið 1982 þegar Magga Thacter reis úr öskustó? Förin til Kænugarðs bjargaði ekki pólitísku lífi Borisar sem hrökklaðist frá völdum 7. júlí ‘22. Davos guttinn Rishi Sunak tók sæti hans eftir snotra fléttu glóbalista. Bretar kalla hann Rikka-ríka. Maðurinn sem vildi semja frið við Rússa hét Denys Kirieiev. Hann var drepinn af SBU leyniþjónustu Zelinskiy og líki hans kastað á götu í Kænugarði öðrum til viðvörunar.

BLIND Á BIDEN-CRIME-FAMILY

Friðrik talar um siðferðilegan stuðning Vesturlanda! Íslenskir leiðtogar virðast blindir á Biden-Crime-Family. Eftirlitsnefnd bandaríska þingsins; Oversight Committee rannsakar 1.400 milljón króna; $10M greiðslur erlendra ríkisborgara, úkranskra, rúmenskra og kínverskra til níu Biden-fjölskyldu-meðlima. Það virðist borga sig að heita Biden er fyrirsögn Moggans um þessa fléttu. Þingið boðar rannsókn á Tölvu-úr-Helvíti; Laptop-from-Hell sem FBI hylmdi yfir með Biden haustið 2020 ásamt 51 CIA-agent. Anthony Blinken safnaði undirskriftunum og hlaut embætti utanríkisráðherra í verðlaun, að sögn Davíðs Oddssonar í Reykjavíkurbréfi. Tölvan afhjúpar glæpi Biden-feðga, 459 lögbrot. Svo er það skýrsla Johns Durham sérstaks saksóknara sem var birt var í liðinni viku um uppruna Rússa-galdurs; Russia-Hoax runninn undan rifjum Hillary Clinton og FBI þess efnis að Trump væri leppur Pútin. Dómsmálanefnd þingsins hefur boðað Durham til að bera vitni fyrir þinginu. CNN kveður skýrslu Durham ...auðvitað mikið áfall fyrir FBI. Davíð skrifar: Jafnvel CNN líður illa. Biden er sílygari. Árið 1988 státaði Biden af hærri greindarvísitölu IQ en mótframbjóðandi þegar hann kvaðst hafa verið afburða nemandi með þrjár háskólagráður. Newsweek upplýsti að Biden hefði verið með eina háskólagráðu, nr. 76 af 85 nemendum frá Syracuse-háskóla; University of Syracuse.

Hverju er við að búast um framtíð Íslands ef okkar helstu sérfræðingar um varnar & utanríkismál eru blindir á siðblindu nato-ríkja og hina óvægnu hrakför í Úkraínu? Hver er skýring á blindu þeirra?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Vel skrifaður pistill og hægt að taka undir þetta. Það mikilvægasta er vafalaust að fólk  viðurkenni blóðugt valdarán í Kænugarði 2013-2014, og áhuga Vesturlanda á að ná þarna ítökum í áraraðir. Ari Tryggvason skrifaði 20. 12. 2022 í DV: "Dauðalistinn og tjáningarfrelsið":"Í rauninni byrjaði NATÓ að móta svið upplýsinga í Úkraínu strax árið 1997 með stofnun NIDC í Kænugarði í kjölfar undirritunar sáttmála NATO og Úkraínu um sérstakt samstarf." National Information and Documentation Center er áróðursstöð á heimsvísu sem vill sía út og stjórna fréttaflutningi, berjast gegn falsfréttum að þeirra mati. 

Elítan sem stjórnar heiminum notar Úkraínu sem miðpunkt fyrir sínar fasísku aðgerðir, enda er þar spilling mikil og samskiptin oft stirð við Rússland.

Það sést á því hversu miklu er til fórnað í þessu stríði Davoselítunnar gegn ólígörkum Rússlands að Davoselítan  er að falli komin og Covid-19 samsærið gekk ekki eins og til var ætlast. Endurræsingin mikla er þeim svo mikilvæg að heimsfriði er fórnað og mannslífum.

Það fer að koma að almenningi að hjálpa til, rísa upp gegn Davoselítunni, og spilltum stjórnmálamönnum í hverju landi fyrir sig.

Ingólfur Sigurðsson, 22.5.2023 kl. 17:15

2 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Vont er þeirra siðleysi og verra þeirra siðferði. Vondar eru þeirra lygar en verri þeirra sannleikur. Vont er þeirra ranglæti og verra þeirra réttlæti.

Það er með ólíkindum hvernig öllu hefur verið snúið á hvolf hjá þessu liði og óliðandi að íslensk stjórnvöld skuli taka þátt í öllu plottinu.

Guð minn fyrirgef okkur að taka þátt í öllu þessu ranglæti og opna augu þeirra sem blindir eru á það sem er í raun að gerast.

Þakka þér Hallur fyrir skrif þín hér á blogginu sem eru mjög upplýsandi, en eins og augljóst er þá fást ekki réttar upplýsingar á meginstraums miðlum.

Tómas Ibsen Halldórsson, 22.5.2023 kl. 17:43

3 Smámynd: Guðrún Bergmann

Takk fyrir enn einn frábæran pistil Hallur!

Guðrún Bergmann, 22.5.2023 kl. 17:55

4 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Hverjir ráða skrifum manna?  

slóð

Klístraðir, hleraðir, myndaðir. Erum við allir klístraðir, hleraðir, myndaðir, fylltir, eftir fundi, teknar upptökur, með unglingum, og svo hótað birtingu á sviðsetningunni, og þá samþykkjum við allt, svo sem ÍSAVE, og svo sem ORKUPAKKA 3. Skáldsaga.

Jónas Gunnlaugsson | 28. október 2022

Spurning? Hvað er rétt? Hvað er satt? Skáldsaga? Þessi skrif eru byggð á greinum sem ég hef lesikð. Ef ég hef misskilið eitthvað, þá laga ég það. Þingmenn geta ekki varið okkur, þeir verða klístraðir, hleraðir, myndaðir, fylltir, eftir fundi, teknar 

 

Jónas Gunnlaugsson, 22.5.2023 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband