Ísland í stríði við Rússland ...

Græninginn Annalena Baerbock utanríkisráðherra Þýskalands lýsti því yfir í Strassbourg á þriðjudag að Þýskaland sé í stríði við Rússland. „We are fighting a war against Russia – Við erum í stríði við Rússland,“ sagði Annalena í Strassbourg á þriðjudag. Þessi yfirlýsing er þögguð af megin-miðlum sem eru uppteknir af Stóra-skriðdrekamálinu teljandi nokkra tugi skriðdreka sem senda á til Úkraínu. Ekki er vitað til þess að þýska þjóðin hafi verið spurð um stríð við Rússland. Hvað um íslenska þjóð?

Í stríð við kjarnorkuveldi 

Vopnlaus Evrópa er í stríði við kjarnorkuveldið Rússland, ég segi vopnlaus því evrópskir herir eru lítt bardagahæfir. Frá 1945 til 1991 geisaði Kalt stríð í veröldinni. Leiðtogar risaveldanna gerðu allt til þess að koma í veg fyrir átök þeirra á milli. Næst komst veröldin kjarnorkustríði í Kúbudeilunni 1962. Rússar hafa yfir að ráða öflugustu kjarnorkuvopnum veraldar; eldflaugum sem fara á margföldum hljóðhraða. 

Escelating War on a Escelator“ er nú sagt. Vestrænir pólitíkusar á rúllustiga stigmagna heimsstríð. Ætla menn ekkert að læra af sögunni? Þriðja heimsstyrjöldin er hafin; World War III. Der Spiegel segir: Ukraine Losing Hundreds of Soldiers Every Day. Þýska leyniþjónustan skelkuð; alarmed yfir úkraínsku mannfalli. Um 160 þúsund úkraínskir hermenn fallnir og „missing in action.“ Kjánar segja að Rússar séu að tapa stríðinu. Harmleikur á sér stað í Úkraínu þar sem bræður berast á banaspjót.

Vopnlaus Evrópa verður að reiða sig á Bandaríkin sem hleyptu þessu af stað undir stjórn seníls glæpamanns, Jóa Biden. Við fáum við ekki fréttir af barnaníði, mansali og spillingu Biden-feðga hér á Íslandi. Ameríka veit allt um  tölvu Bidenfeðga; Laptop from Hell. Við hér á Íslandi ekki því RÚV hylmir yfir barnaníð, mansal og glæpi. Frá Ameríku berast fréttir af leyniskjölum forsetans á glámbekkjum hér og þar. Í bandaríska þinginu hefst brátt rannsókn á þessum fyrirlitlega manni.

Katrín og Scholz

     Kata & Þórdís með stríðshaukum

Katrín Jakobsdóttir stillti sér upp  með Ólafi Scholz kanslara Þýskalands í Berlín þremur dögum eftir yfirlýsingu Önnulenu. Af hverju í veröldinni? Vg á Íslandi og græningjar í Þýskalandi í fremstu víglínu. Kata litla í Berlín sömu viku og utanríkisráðherra Þýskalands lýsir stríði á hendur Rússlandi. Þetta er ekki hægt að skálda. Ísland lýsti aldrei yfir stríði gegn Þýskalandi, af hverju stefnubreyting? Þórdís Kolbrún var í amerísku herstöðinni Ramstein á dögunum þegar Stóra-skriðdrekamálið var á dagskrá; Þórdís stillti sér upp með stríðshaukum Nato, Ameríku og Úkraínu.

Ukraine stríðshaukar

 

Hvað er eiginlega í gangi? Ísland á forsíðum, er verið að gera Ísland að skotmarki? Hvert verður íslenskt skotmark rússneskra eldflauga? Blasir það ekki við ... Ísland hlekkur milli Evrópu og Ameríku. Daglega lenda vígadrekar hlaðnir hergögnum í Keflavík. Pólitíkusar hlaupa fram og til baka sem hauslausar hænur. Nú biður Kænugarður um orrustuþotur og kafbáta. Rússar hafa eyðilagt flugvelli Úkraínu sem hírist í kulda og myrkri. Hvaðan eiga þoturnar að hefja sig til flugs til árása á Rússa ... Ramstein Þýskalandi? Rússland, Kína, Indland og S-Afríka með sameiginlegar flotaæfingar í febrúar... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband